hugmyndabanki
Leikjakassi
Leikjakassi
Couldn't load pickup availability
Fyrsti föndurkassi Hugmyndabankans árið 2023 er mættur til leiks. Kassinn inniheldur nákvæmlega það efni sem þarf í föndrið og þar af leiðandi er ekkert umfram efni sem endar í ruslinu eða ofan í skúffu.
Alls konar skemmtilegt föndur og leikir fyrir unga sem aldna sem hægt er að nota aftur og aftur.
Leiðbeiningar fylgja með skriflega og einnig er hægt að nálgast leiðbeiningar á myndböndum á QR-kóða sem fylgir* Það er um að gera að leyfa þeim sem hafa aldur til að spreyta sig sjálf á að fylgja myndböndunum eftir.
Í kassanum er efni í:
4 fiðrildastimpla og 2 gjafapoka
4 svampbáta
Skrímsla- og fuðrudýraverksmiðju með teningi
2 dúskakastara
Heima þarf að eiga ritföng og skæri.
Hlökkum til að halda áfram að föndra með ykkur á nýju ári!
Hafið í huga að föndurkassinn inniheldur smáhluti.
*fyrir þá sem vilja nýta myndbandsleiðbeiningar þá þarf að opna myndavélina á næsta snjalltæki og halda henni yfir QR kóðanum þangað til slóð á myndbandið birtist og smella á slóðina.
Efni
Efni
Stærð
Stærð







