Um okkur
Við hjá Hugmyndabankanum leggjum okkur fram við að búa til föndur fyrir alla þá sem hafa gaman af því að föndra. Við viljum gera fólki kleift að föndra án þess að fara í margar búðir til að finna allt í föndrið og sömuleiðis að vera ekki með umfram efni sem fer ofan í skúffur og safnar ryki. Markmið er að búa til samverustundir fyrir unga sem aldna. Hlökkum til að föndra með ykkur 🌈